Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Við í Framsókn ætlum að vera á skóflunni í allan vetur. Við ætlum að vinna og við ætlum að vinna meira og við ætlum að taka ábyrgð á því sem er að gerast hér og við stjórn landsins. En það er ekkert nýtt. Við erum jú elsti stjórnmálaflokkur landsins og höfum fylgt þessari þjóð ansi lengi og árangurinn hefur bara verið býsna góður. Við horfum alltaf til þess að reyna að leysa mál og reynum að vinna með fólki af því að við kunnum bara frekar vel við fólk og teljum að það sé lykillinn að því að okkur gangi vel sem þjóð.
Sumir segja að framsóknarmennskan sé í okkur öllum. Henni þykir afskaplega vænt um sveitir landsins, elskar tungumálið sitt, styður við grunnatvinnuvegi þjóðarinnar og virðir menningu landsins. Við teljum að það sé gríðarlega mikilvægt að halda í þessi grunngildi þjóðarinnar.
En kæru landsmenn. Mig langar aðeins að víkja að málflutningi stjórnarandstöðunnar og vitna í Kópavogsskáldið Árna Pál Árnason, Herra Hnetusmjör: „Ekki er öll vitleysan eins“ með leyfi forseta.
Formaður Samfylkingarinnar kom hér. Þau eru búin að fara rosalega mikið inn á við, svo mikið inn á við að þau eru búin að kasta öllum sínum stefnumálum; ekkert Evrópusamband, engin evra, ekkert slíkt. En hvert er planið? Formaður Samfylkingarinnar vék ekki einu orði að þessu plani. Það sem ég hef heyrt er að hún er bara svolítið að taka yfir — því miður fyrir okkur og sýnir að við þurfum aðeins að standa okkur betur — stefnumál Framsóknarflokksins. [Hlátur í þingsal.] Búið er að henda öllu öðru út. Ekki er öll vitleysan eins.
Síðan kemur formaður Viðreisnar og heldur hér ansi góða ræðu, enda skörungur. Hvernig ætlar hún að leysa allt? Jú, það er Evrópusambandið, taka upp evruna. Það er ekkert annað, engar lausnir, ekkert að frétta og hefur ekkert verið að frétta.
En mest kom formaður Miðflokksins mér á óvart, minn gamli félagi. Ég bjóst við að hér myndi hann koma og tala í lausnum; hvernig ætti að ná tökum á verðbólgunni, hvernig ætti að skera niður í ríkisrekstri. — Ekkert. Ekki neitt. Sú var tíðin þegar vorum saman í Framsóknarflokknum og vorum að vinna saman að stórum málum og gekk bara býsna vel.
Mér finnst bara dálítið mikilvægt þegar við erum að fara yfir stjórnmálasviðið að við höldum því líka til haga að það er alveg rétt sem formaður Miðflokksins sagði, það er stutt í kosningar, en við verðum þá líka svolítið að vita hvað þessi ágæta stjórnarandstaða ætlar að gera. Samfylkingin ætlar að taka stefnumál Framsóknar, búin að kasta öllu út. Viðreisn, jú það er bara evran, það hefur alltaf verið evran. Og Miðflokkurinn — ég veit ekki hvað á að segja meira. En svona er þetta.
En það er svo, virðulegur forseti og góðir landsmenn, að við höfum haft góða sögu að segja á Íslandi undanfarin ár. Hagvöxtur hefur jú verið mikill, landsframleiðslan vaxið verulega. Atvinnustig hefur verið mjög hátt og atvinnulífið er orðið mun fjölbreyttara en það var áður. Útflutningur hefur vaxið og gengi krónunnar verið nokkuð stöðugt. Það hefur að mörgu leyti gengið vel í íslensku hagkerfi og ég held að landsmenn hafi fundið það. Það breytir hins vegar ekki því að verðbólga er enn of há og vextir eru of háir. Þess vegna erum við að sjálfsögðu að gera allt sem við getum og leggjum auðvitað allt undir til þess að verðbólga og vextir lækki. Við verðum að ná þessu niður og til þess að það gerist þá verðum við að líta á það hvernig vísitala neysluverðs er samsett. Þegar við tökum út húsnæðisliðinn er hún 3,6% en hún hefur verið að lækka. En eina leiðin og raunhæfa lausnin til þess að við náum verðbólgunni enn frekar niður er að auka framboð á húsnæði. Reykjavíkurborg hefur verið að stíga mjög stór skref undanfarið og tvöfaldað lóðaframboðið og það er nauðsynlegt vegna þess að það þarf að byggja meira. Unga fólkið okkar verður að geta keypt sér húsnæði á viðráðanlegu verði. Það er framtíð landsins.
En, kæru landsmenn. Ég get lofað ykkur því að við í Framsóknarflokknum munum leggja okkur öll fram við þetta verkefni. Verðbólga verður að lækka. Vextir verða að lækka til þess að framtíðin verði betri og svo að okkur líði öllum betur í þessu landi.