143. löggjafarþing — 20. fundur,  12. nóv. 2013.

störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F):

Herra forseti. Aðeins ein jörð. Ómar Ragnarsson var einn framsögumanna á umhverfisþinginu sem fram fór í Hörpu á föstudaginn. Hann fór með ljóð sem fjallaði um mikilvægi þess að fara vel með jörðina. Vel gert hjá Ómari og við getum öll verið sammála um að við eigum og verðum að fara vel með jörðina því að án hennar getum við ekki lifað.

Umhverfisþingið var haldið á vegum umhverfisráðuneytisins en á fjórða hundrað manns sátu þingið. Ég óska hæstv. umhverfisráðherra til hamingju með þingið og öðrum þeim sem að því stóðu því að það var hið glæsilegasta.

Meginumræðuefni þingsins var skipulag lands og hafs, sjálfbær þróun og samþætting verndar og nýtingar. Hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, fjallaði meðal annars um skipulag sem mikilvægt stjórntæki til að samræma ólíkar kröfur og sjónarmið, m.a. um auðlindanýtingu, atvinnuþróun og umhverfisvernd. Hann lagði í máli sínu áherslu á að nýta þurfi auðlindir landsins af skynsemi ef takast á að tryggja velferð og hagsæld í landinu með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, var aðalræðumaður þingsins og hélt erindi sem fjallaði um skipulag í víðu samhengi og sjálfbærar lausnir í því sambandi. Hún dró fram mjög áhugaverða tölfræði sem undirstrikaði hversu mikilvægt er að horfa til framtíðar í skipulagsmálum, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Fleiri áhugaverð erindi voru haldin, m.a. um hvernig hægt sé að byggja upp atvinnulífið, nýta landið en um leið vernda það. Þeir þættir geta nefnilega vel farið saman og styrkt hver annan ef skipulagið er gott og úthugsað.

Hæstv. ráðherra lagði einmitt áherslu á að brýnt sé orðið að hefjast handa við að ná á heildstæðan hátt yfir einstaka þætti landnotkunar og því sé stefnt að því að hefja vinnu í umhverfisráðuneytinu um gerð landnýtingaráætlunar sem verði hluti landsskipulagsstefnu (Forseti hringir.) 2015–2026. Það verður áhugavert að fylgjast með þeirri vinnu.