150. löggjafarþing — 20. fundur,  17. okt. 2019.

aðgerðir gegn peningaþvætti.

[10:45]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Fyrst um það að fullyrt hafi verið að ef frumvörpin tvö yrðu samþykkt þá myndum við ekki lenda á þeim gráa lista. Ekki ætla ég að kannast við þau orð. En að samþykkt þessara frumvarpa og að þau yrðu að lögum væri lykilatriði til að gera það sem við gætum til að lenda ekki á þeim lista, það kannast ég við og það er staðreyndin. Þannig er það. Það var lykilatriði að gera þessi frumvörp að lögum til þess einmitt að geta hakað við þau atriði sem við áttum eftir áður en ákvörðun er tekin um hvort við förum á þennan lista eða ekki. Eina atriðið sem ekki er hægt að haka við að fullu er einhvers konar kerfi sem við þurfum að kaupa og höfum keypt en ekki er búið að ljúka við innleiðingu á því, af því að það er einfaldlega ekki hægt að ljúka henni á örfáum dögum eða vikum. Það er tímasett nákvæmlega hvenær það verður. Þær upplýsingar liggja allar fyrir gagnvart því fólki sem vinnur þessa vinnu og tekur þessa ákvörðun.

Það er auðvitað sjálfsagt að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kanni allt það sem hún telur mikilvægt að kanna og fái þær upplýsingar sem hægt er að veita. (Forseti hringir.) En ég ítreka það til að svara spurningunni örugglega, sem ég gerði þó tvisvar í fyrra svari, að ákvörðun hefur ekki verið tekin. Þess vegna veit ég ekki hvort við lendum á þessum lista. Ef við gerum það hef ég mínar skoðanir á því hvort við eigum raunverulega heima á svona lista.