157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

almenn hegningarlög.

82. mál
[14:47]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið en ég er ekki miklu nær. Hv. þingmaður vísar hér til fjölmiðlalöggjafarinnar en hann veit það mætavel að það gilda önnur sjónarmið um tjáningu sem fer fram á vettvangi fjölmiðla annars vegar og af hálfu einstaklinga hins vegar. Í þessu tilfelli er verið að leggja fram breytingar á 233. gr. a hegningarlaga sem hefur fyrst og fremst þau áhrif að ná yfir einstaklingstjáningu sem kann að lenda á ljósvakamiðlum eða athugasemdakerfum, og þannig var það nú einfaldlega í þeim málum sem hv. þingmaður vísar til sem eru frá í lokum árs 2017.

Ég verð nú samt að fá að koma því á framfæri — allavega skil ég það svo og ég vil þá bara að hv. þingmaður leiðrétti mig — að hún gefi einhvern veginn í skyn að Hæstiréttur og þeir dómarar sem þar sitja hafi orðið fyrir einhvers konar geðþóttaáhrifum af hálfu afla sem höfðu sig í frammi um að ræða kerfisbundið ójafnrétti í samfélaginu á þessum árum. Það er alveg stórt að segja það en ég ætla samt að láta það liggja á milli hluta.

Ég vil bara að það sé sagt hérna í þessum stól, vegna þess að hv. þingmaður skautaði fram hjá því fyrir hvaða ummæli var sakfellt, að það var einstaklingur sem sakaði yfirvöld í Hafnarfirði um það að troða kynvillu í saklaus börn. Ég mun koma aðeins inn á það í ræðu minni á eftir, en getur hv. þingmaður sagt mér hvort hún telji þau ummæli til þess fallin að kynda undir eða hvetja til haturs, ofbeldis eða mismununar? Ég væri til í að fá afstöðu hv. þingmanns til þess.