157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

samningsfrelsi og heimildir ríkissáttasemjara.

[15:09]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið en vil einnig spyrja um næstu skref. Frumvarp okkar Sjálfstæðismanna skerpir framkvæmdina. Ég legg áherslu á að hér er ekki verið að taka þessa starfsgrein út fyrir sviga heldur er markmiðið traust ferli sem dregur úr tjóni þegar ágreiningur kemur upp. Sagan sýnir að ágreiningur á þessum vettvangi kemur reglulega upp og getur haft víðtæk og alvarleg áhrif. Þess vegna er aðkallandi að ráðast í breytingar. Það er ekki eðlilegt ástand að leggja þurfi fram lagafrumvarp á heila starfsstétt til að aflétta verkfalli.

Telur ráðherra að þessi endurteknu áföll sýni svart á hvítu að nauðsynlegt sé að samþykkja fyrirliggjandi frumvarp okkar Sjálfstæðismanna til að stytta deilur og verja almannahagsmuni? Hvernig sér ríkisstjórnin fyrir sér að ráðast í úrbætur á þessu sviði ef ekki með samþykkt frumvarpsins og hvenær telur hæstv. fjármálaráðherra tímabært fyrir ríkisstjórnina að stíga inn í deiluna?