samningsfrelsi og heimildir ríkissáttasemjara.
Forseti. Nú skal ég viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér það frumvarp sem hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir vísar til en mun koma þeim ábendingum til hæstv. félagsmálaráðherra að gera það. Það liggur fyrir að þetta eru viðkvæm mál. Það hefur heyrt til undantekninga að Alþingi grípi inn en þetta er réttur og skylda sem alltaf er eðlilegt að skoða þegar meiri háttar hagsmunir eru annars vegar. Ég get hins vegar tekið undir það með hv. þingmanni að betur færi á því að á þessu væri eitthvert fast kerfi og það er allrar athygli vert að skoða hvort ríkissáttasemjari eigi að hafa eitthvert hlutverk í því.