vörugjald á bifreiðar.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir spurninguna og óska henni til hamingju með embættið. Það er rétt hjá henni að það er gert ráð fyrir að þetta séu breytingar á bandormi. Breytingar á vörugjöldum hafa komið inn í bandorminn, gerðu það bæði á árinu 2023 og 2024, þannig að hér er ekki um óvanalega aðgerð að ræða.
Síðan víkur hv. þingmaður að þeim breytingum sem um er að ræða og gerir þar að umtalsefni breytingar sem eiga að stuðla að því að hagkvæmara verði að kaupa hreinorkubíla sem ganga fyrir íslensku eldsneyti. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að niðurgreiðsla rafbíla var af Hagfræðistofnun metin sem aðgerð sem skilaði litlu. Hér er hins vegar ekki um slíka niðurgreiðslu að ræða. Þau vörugjöld sem við höfum haft og höfum nú eru metin út frá umhverfisáhrifum og það hefur verið yfirlýst markmið, ekki bara þessarar ríkisstjórnar heldur margra ríkisstjórna hér í mjög langan tíma, að stuðla að því að við getum átt eða farið í gegnum svokölluð orkuskipti sem snúast um að hætta að nota innflutta orkugjafa og nota þess í stað hreina íslenska raforku á bílaflotann; draumur sem var tæknilega fjarlægur fyrir örfáum árum síðan en er nú orðinn fullkomlega raunhæfur, svo raunhæfur í raun að íslensk heimili fjárfestu á síðasta ári 60% af sínum bílakaupum í hreinorkubifreiðum.