139. löggjafarþing — 21. fundur,  5. nóv. 2010.

ráðherraábyrgð.

72. mál
[13:41]
Horfa

Flm. (Eygló Harðardóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þegar ég vann þetta mál horfði ég mjög mikið til frumvarps sem hv. þingmaður Páll Pétursson lagði fram á sínum tíma. Mér var einnig hugleikið hvernig við gætum tryggt skýrleika lagaákvæðisins því það þyrfti að vera mjög skýrt að viðkomandi ráðherra væri að gefa rangar upplýsingar og væri að leyna upplýsingum við meðferð máls á Alþingis. Þess vegna tók ég út þann texta sem var í fyrra frumvarpi um villandi upplýsingar.

Á þeim stutta tíma sem ég hef verið á Alþingi hef ég oft fengið sterklega á tilfinninguna að einhvers staðar sé haldið námskeið fyrir starfsmenn ráðuneytanna þar sem þeim er kennt hvernig þeir eigi að fara fram hjá því að svara spurningum, fyrir hönd ráðherranna, sem þingmenn beina til þeirra. Þetta eru einhvers konar æfingar í því hvernig á að svara án þess að svara. Þetta hefur líka verið iðkað af mikilli list hér í þingsölum og hv. þingmaður Ragnheiður Ríkharðsdóttir fékk að upplifa þetta þegar fyrrverandi viðskiptaráðherra Gylfi Magnússon reyndi eins og hann gat að komast undan því að svara mjög vel mótaðri og skýrri spurningu frá henni varðandi lögmæti gengistryggðra lána. Það sama upplifði ég síðan í skriflegri fyrirspurn um sama efni.

Hér er sem sagt átt við það ef menn gefa Alþingi af ásetningi rangar upplýsingar við meðferð máls eða lagafrumvarps eða annars eða leyna Alþingi upplýsingum, sem getur í framhaldinu valdið okkur skaða við þá ákvarðanatöku sem við iðkum hér, þær ákvarðanir sem við tökum daglega á Alþingi.