157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

samningsfrelsi og heimildir ríkissáttasemjara.

[15:05]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í gærkvöldi hófst verkfall flugumferðarstjóra sem hefur í för með sér veruleg áhrif á flugsamgöngur, áætlanir ferðamanna, starfsemi ferðaþjónustu og rekstur flugfélaga. Áhrifin ná einnig til fjölmargra fyrirtækja og heimila sem treysta á öruggar og tímalegar tengingar við útlönd. Við virðum samningsfrelsi og verkfallsrétt en á sama tíma ber okkur skylda til að gæta almannahagsmuna og stuðla að því að deilur leysist á farsælan og fyrirsjáanlegan hátt. Sjálfstæðismenn hafa lagt fram frumvarp sem miðar að því að efla stöðu og valdheimildir ríkissáttasemjara í samræmi við það sem þekkist á Norðurlöndunum. Þar er kveðið á um skýrari ramma um miðlunartillögu sem taki mið af heildarlaunastefnu, bindandi tímaramma fyrir leynilega atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna og heimild til tímabundinnar frestunar á boðuðum vinnustöðvunum þegar almannahagsmunir eru í húfi. Jafnframt er gert ráð fyrir auknu gagnsæi um lykiltölur vinnumarkaðarins til að styrkja sameiginlegan skilning á forsendum samninga.

Spurningar mínar til hæstv. fjármálaráðherra eru þessar: Deilir hæstv. fjármálaráðherra þeirri skoðun að núgildandi lagaumhverfi sé takmarkað í samanburði við nágrannaríkin og að nauðsynlegt sé að efla embætti ríkissáttasemjara, bæði sjálfstæði og í úrræðum? Styður ríkisstjórnin meginatriði frumvarpsins, þar á meðal tímabundna frestunarheimild þegar almannahagsmunir krefjast eða hyggst hún leggja fram eigin tillögur á sambærilegum grunni? Hvenær mega almenningur, aðilar vinnumarkaðarins og þjónustugreinar sem reiða sig á flugsamgöngur gera ráð fyrir skýrri afstöðu ríkisstjórnarinnar og viðeigandi aðgerðum?