157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

kostnaður vegna falls flugfélagsins Play.

[15:16]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þekki það af veru minni í fjármálaráðuneytinu að þegar við förum að tala um milljarða þá rennur þetta allt saman en í hugum venjulegs fólks er talsverður munur á 500 milljónum og 5 milljörðum, umtalsverður. Ef þetta eru ólíkar sviðsmyndir þá held ég að það sé áhugavert og nauðsynlegt fyrir þingið að vita hvaða sviðsmynd það er þar sem fjármálaráðuneytið metur að tjónið sé 5 milljarðar. Ef það er bara fólk þá held ég að það sé dálítið mikið langtímaatvinnuleysi þannig að það hljóta að vera einhverjir fleiri þættir sem liggja þarna að baki. Þá dettur manni auðvitað fyrst í hug Isavia. En það má líka spyrja sig þeirrar spurningar hvað ríkisstjórnin geti gert til að koma til móts við þetta, finna mótvægisaðgerðir, í stað þess að vera að velta sífellt vöngum yfir því hvaða nýju skatta og álögur sé hægt að leggja á fyrirtækin í landinu, ferðaþjónustuna í þessu tilviki.

Þá er áhugavert að spyrja hér að lokum hæstv. fjármálaráðherra hvort ríkisstjórnin hafi tekið það til skoðunar, og fjármálaráðuneytið sérstaklega, af því að ég veit að þau mál fara þar í gegn,(Forseti hringir.) hvort til greina komi að fara í raunverulegt markaðsstarf til að tryggja að það verði fleiri flugfélög sem stígi inn í gatið og vinna gegn því miður minnkandi áhuga sums staðar eða að efnahagsástand valdi því að aðsókn til Íslands sé að minnka.