157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

meðferðarúrræði fyrir börn og unglinga.

[15:32]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Varðandi meðferðarúrræði erlendis þá er það í skoðun hjá okkur í ráðuneytinu en eins og staðan er í dag tel ég að við eigum að einbeita okkur að því að klára Gunnarsholt. Það er forgangsverkefni vegna þess að við erum jafnvel að skoða hvort við getum tekið hluta af því fyrr í notkun ef á þarf að halda. Staðan er í dag sú að við erum með þrjú laus pláss. Það eru ekki biðlistar, ég segi bara sem betur fer og vonandi verður það ekki. Ef við höldum þetta út og náum Gunnarsholti inn þá erum við tiltölulega komin á þann stað að við getum virkilega farið að taka á þessum málum

Hvort við erum að fara að byggja upp annars staðar — jú, við erum með það og við erum í samtali við Garðabæinn. Mér skilst að það sé á síðustu metrunum og ég vona heitt og innilega að ég geti innan örstutts tíma upplýst um það hvort við getum ekki bara farið strax í að byggja þar. Það væri óskandi að það væri hægt og ég bara vona heitt og innilega að það verði það næsta sem ég get tilkynnt um.