bílastyrkir lífeyrisþega.
Virðulegi forseti. Ég vil enn á ný þakka fyrir tækifærið til að ræða þetta. Ég tek algjörlega undir það að það er mjög mikilvægt að vanda sig við sameiningar. Þess vegna höfum við lagt mikla áherslu á að fyrst yrði farið í svokallaða fýsileikakönnun á því hvort rétt væri að taka þessa ákvörðun. Síðan í framhaldinu, þegar niðurstöður liggja fyrir eftir áramót, tökum við ákvörðun út frá þeirri niðurstöðu. Hins vegar hef ég fundið fyrir mikilli jákvæðni hjá starfsmönnum þeirra stofnana sem ég nefndi og líka hjá notendum og við höfum fundað einmitt sérstaklega með þeim.
Svo að ég fái aftur að koma að því verkefni sem ég nefndi hér, sem snýr að notkun velferðartækni í velferðarþjónustu, er búið að senda út bréf, við vorum bara að gera það núna í dag, þar sem við óskum eftir tilnefningum í starfshóp. Hann á að skoða hvernig við getum notað nýja tækni, nýsköpun, nýja hugsun og nýja ferla í því að veita þessa þjónustu. Það getur vel verið að það sem við leggjum áherslu á núna, t.d. varðandi bílaþjónustu eða styrki vegna bíla, verði með allt öðrum hætti ef t.d. Google-fyrirtækið nær sínu fram um sjálfvirka (Forseti hringir.) bíla sem keyra sjálfir þangað sem maður vill fara.