153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ríkisábyrgð ÍL-sjóðs.

[15:22]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég skil ekki alveg hvernig hæstv. ráðherra ætlar að knýja fram eins konar slitameðferð eða gjaldþrotaskipti eða greiðsluþrot hjá opinberri stofnun. Það kemur skýrt fram í lögum að slíkt er ekki heimilt. ÍL-sjóður er ekki hlutafélag heldur opinber stofnun. Íbúðalánasjóður var óumdeilanlega opinber stofnun. Við lagabreytingarnar 2019 var skýrt tekið fram að uppstokkunin myndi ekki hafa áhrif á réttindi kröfuhafa, það var skýrt tekið fram 2019. Að krefjast skipta á ÍL-sjóði er í rauninni eins og að ætla að krefjast skipta á úrskurðarnefnd upplýsingamála eða hjá sýslumanninum á Akureyri. Þetta er einfaldlega bara hluti af ríkinu. Svo einfalt er það. Lagaheimild sem knýr fram slík skipti gefur þau merki út á við að öll skuldabréf hins opinbera, opinberra aðila, kunni að vera greidd upp án uppgreiðslugjalds eða með svipuðum aðferðum. Það hefur alltaf legið fyrir að íslenska ríkið ætli að ábyrgjast skuldabréfin og skuldabréfin væri ekki hægt að greiða upp á einu bretti. Ábyrgð ríkisins á þessum skuldabréfum er til 40 ára, hún er frá 2004–2044. (Forseti hringir.) Ríkið virðist telja sig geta stytt þennan tíma. Það getur ekki stytt hann í 20 ár, tíu ár eða skemur. (Forseti hringir.) Spurning mín er þessi: Telur hæstv. ráðherra ÍL-sjóð vera opinbera stofnun eða ekki? Þetta er einföld spurning og ég óska eftir skýru svari.