155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.

316. mál
[12:33]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Jódís Skúladóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá allsherjar- og menntamálanefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, nr. 84/2023. Með frumvarpinu er lagt til að framlengja gildistíma 1.–3. gr. og 3. mgr. 5. gr. laganna um tvö ár eða til 1. janúar 2027. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti og eru gögn málsins aðgengileg á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar um málið vill nefndin árétta sérstaklega mikilvægi þess að framlengja gildistíma laganna til að tryggja að ráðherra hafi heimild til að bregðast við og taka ákvörðun um framkvæmdir ef nauðsyn krefur, til að vernda mikilvæga innviði á Reykjanesskaga vegna hættu af völdum áframhaldandi eldsumbrota. Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu er ljóst að þeir varnargarðar sem hafa verið reistir á grundvelli laganna hafa komið í veg fyrir verulegt tjón sem annars hefði getað orðið á innviðum.

Nefndin fjallaði um nauðsynlegar framkvæmdir í þágu almannavarna og samspil við önnur lög. Í umsögn Umhverfisstofnunar um málið er bent á að mögulega þurfi að endurskoða 2. mgr. 2. gr. laganna með hliðsjón af brýnum framkvæmdum á svæðinu sem falla ekki undir ákvæðið. Jafnframt er í umsögninni bent á að það skorti heimild fyrir ráðherra til að veita undanþágur frá leyfisveitingu vegna almannavarna samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um erfðabreyttar lífverur. Starfsleyfi þurfi t.d. enn fyrir olíubirgðastöðvar, jarðborun, gististaði og brennsluver sem geta m.a. verið varaaflsstöðvar.

Nefndin telur brýnt að lagt verði heildstætt mat á hvort sömu neyðarréttarsjónarmið og voru fyrir hendi við setningu laganna eigi enn við, einkum með tilliti til ábendinga í umsögnum sem og þeirra lagabálka sem er vikið frá við undirbúning, töku og framkvæmd ákvarðana samkvæmt lögunum og varða m.a. náttúruvernd, skipulagslög, umhverfismat og hollustuhætti og mengunarvarnir. Einnig er vikið frá stjórnsýslulögum en nefndin undirstrikar í því samhengi að ekki verði vikið frá óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttar og að ráðherra og öðrum stjórnvöldum beri m.a. að gæta að meðalhófi og jafnræði.

Þrátt fyrir að gildistími laganna verði framlengdur að svo stöddu leggur nefndin áherslu á að mikilvægt sé að tekið verði til nánari skoðunar hvort og hvernig málsmeðferð ákvarðana um uppbyggingu fyrirbyggjandi ráðstafana verði háttað til lengri tíma. Nefndin beinir því til ráðuneytisins að þeirri vinnu verði lokið áður en gildistími laganna rennur sitt skeið.

Nefndin leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar uppfærð heiti stofnana. Skv. 2. mgr. 3. gr. laganna skal ráðherra, áður en hann tekur ákvörðun skv. 2. gr., gefa þar tilgreindum aðilum skamman frest til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, þar á meðal Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Hinn 1. janúar 2025 taka gildi ný lög sem kveða á um að tvær nýjar stofnanir taki til starfa, nánar tiltekið lög um Umhverfis- og orkustofnun og lög um Náttúruverndarstofnun, en hinar nýju stofnanir taka við verkefnum Umhverfisstofnunar. Þá hefur heiti Náttúrufræðistofnunar Íslands verið breytt í Náttúrufræðistofnun með gildistöku laga nr. 54/2024. Nefndin leggur til að heiti tilgreindra stofnana í 2. mgr. 3. gr. laganna verði uppfærð til samræmis við breytingar á fyrrgreindum lögum. Þá leggur nefndin til breytingu á tímabili framlengingarinnar á heimild ráðherra til að taka ákvörðun um nauðsynlegar framkvæmdir í þágu almannavarna. Með vísan til umfjöllunar nefndarinnar um málið leggur nefndin til að tímabil framlengingarinnar verði stytt og að ákvæði 1.–3. gr. og 3. mgr. 5. gr. verði framlengd til 1. janúar 2026.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Undir nefndarálitið rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson og Oddný G. Harðardóttir.