sérgreining landshlutanna sem vettvangur rannsókna, kennslu og atvinnuþróunar.
Virðulegi forseti. Við hv. þm. Ásbjörn Óttarsson erum alveg sammála um að það er mjög bagalegt að þurfa að taka fjármuni þar sem þeir hafa verið fyrir og það er mjög bagalegt að ekki sé hægt að endurnýja samninga. En þeir sem reka þessar stofnanir, hvort sem þær eru úti á landi eða í Reykjavík eða hvar sem þær eru, þurfa hins vegar að átta sig á þeim samningum sem þeir eru með. Það er það sem fólk þarf að gera sem rekur einkafyrirtæki eins og ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður viti mjög vel. Og þeir sem reka ríkisfyrirtæki þurfa líka að átta sig á því. Það er kannski það sem við erum að reka okkur á, í þessari miklu niðursveiflu sem við erum í, að gerðar verði miklu ríkari kröfur til allra þeirra sem koma að því að reka fyrirtæki af almannafé.
Ég er ekki að gagnrýna neinn eða neitt sérstaklega. Ég er bara að segja að við þurfum að hafa þetta í huga. Mér finnst það skipta mjög miklu máli. Það er náttúrlega ljóst að hv. þingmaður, sem situr alla daga í fjárlaganefnd, veit miklu meira um þessa hluti en ég.