Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

breytingar á raforkulögum til að tryggja raforkuöryggi almennings o.fl.

89. mál
[15:13]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrir framsöguna. Hér er að mörgu leyti um mjög áhugavert mál að ræða, markmið þessarar tillögu eru virðingarverð að mörgu leyti. Það er ljóst að hér er verið að leitast við að fá útfærslu á innleiðingu þriðja orkupakka Evrópusambandsins í íslenska löggjöf og hugtakið alþjónusta er notað.

Mig langar að spyrja sérstaklega um það sem varðar 5. liðinn: „Forgangsraða raforkuframleiðslu til orkuskipta.“ Í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:

„Flutningsmenn tillögunnar telja brýnt að stefnumótun stjórnvalda og lagaumhverfi stuðli að innlendum orkuskiptum og að forgangsraðað verði í þágu orkuskipta.“

Evrópusambandið byggir þetta á markaðsfyrirkomulagi, þ.e. verið er að selja raforku á markaði. Ég get ekki séð að það sé raunverulega hægt að forgangsraða með þessum hætti. Þá er það alvarlegt inngrip í markaðinn. Það er verið að tala um að við ætlum að forgangsraða á raforkumarkaði. Ef við segjum að við ætlum að taka upp rafbíla þá á þessi raforkuframleiðsla væntanlega að fara þangað og nýtur það forgangs fram yfir aðra sem jafnvel eru tilbúnir að borga hærra verð fyrir raforkuna, svo það liggi fyrir. Hvernig samræmist þetta markaðsfyrirkomulagi og orkustefnu ESB sem er gjaldþrota, nota bene? Evrópusambandið er núna í neyðarinngripi og ætlar að endurskoða markaðinn alveg frá grunni. Hann byggir eiginlega á hlutabréfakonseptinu, verðbréfakonsepti sem gengur ekki á neytendamarkaði.

Annað sem mig langar að spyrja um er að það kemur fram á bls. 2 í greinargerðinni að „Ísland er stórframleiðandi endurnýjanlegrar raforku sem virkjuð er með nýtingu vatnsafls- og jarðvarma.“ Nú er það svo að Ísland selur 87% af upprunavottorðum, (Forseti hringir.) uppruna raforkunnar til Evrópu. Í dag eru 58% af raforku á Íslandi framleidd með kolum, jarðefnaeldsneyti, og 29% með kjarnorku. (Forseti hringir.) Hvernig er hægt að tala um að Ísland sé stórframleiðandi endurnýjanlegrar raforku þegar við seljum upprunann á orkunni?