131. löggjafarþing — 24. fundur,  10. nóv. 2004.

Blönduvirkjun.

196. mál
[18:54]

Fyrirspyrjandi (Sigurjón Þórðarson) (Fl):

Frú forseti. Það kemur fram í svarinu að sáralítið af orkunni sem er framleidd á Norðurlandi vestra er notað á svæðinu. Þess vegna er undarlegt að telja að virkja þurfi meira í Skagafirði án þess að hafa kaupanda eins og hæstv. ráðherra benti á og þess vegna fer þessi umræða ekki saman, að tala um að bjarga atvinnulífinu í Skagafirði og að það þurfi að virkja meira þegar ekki er kaupandi að orkunni. Ég hefði talið miklu nær að leita leiða til að nota þá orku sem er framleidd á svæðinu áður en menn fara að virkja meira þar til að flytja enn þá meira í burtu.

Vel á minnst, hæstv. ráðherra minntist á að ríkisstjórnin hefði staðið sig vel í byggðamálum. Ég vitna bara í skýrslu Framsóknarflokksins sem kom út á dögunum um fækkun íbúa yngri en 45 ára á Norðurlandi vestra á valdatíma ríkisstjórnarinnar. Það nær því eiginlega ekki alveg því að þessi tala nær til 2002 en mér sýnist að á tíu ára tímabili hafi fækkað um 1.500 manns. Mér finnst það vera illa að verki staðið, ég verð að segja það eins og er, og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að hæstv. ráðherra sé ánægð með þessar tölur. Mig furðar að menn geti glaðst yfir svo litlu. Þó að það sé ágætur kostur að geta yfirleitt glaðst yfir litlu finnst mér þetta alveg stórundarlegt.