Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

breytingar á raforkulögum til að tryggja raforkuöryggi almennings o.fl.

89. mál
[15:23]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ég vildi gjarnan stimpla mig örlítið inn í umræðuna og fagna þessari tillögu framsögumanns, hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur, og félaga hennar í Samfylkingunni. Ég held að þetta sé algerlega tímabært og hv. þingmaður kom réttilega inn á það að vinna í þessa veru er sannarlega í gangi, en það skiptir líka máli að festa þetta í sessi. Ég veit ekki betur en að við eigum von á frumvarpi á vorþingi um þetta mál, sem ég fagna, en veit að ég og hv. þingmaður, sem eigum bæði sæti í umhverfis- og samgöngunefnd, munum fá það hugsanlega til umfjöllunar með einhverjum hætti þó að það gæti farið í atvinnuveganefnd.

Ég vildi bara koma hingað upp og taka undir þessa tillögu. Mér finnst einboðið að gera þetta. Þetta hefur verið til umræðu reglulega og á þetta hefur nú nýr orkumálastjóri bent í sínu máli, því að það verður endalaus eftirspurn eftir grænni íslenskri orku, eins og hún hefur líka bent á. Það er kannski einhver lúxusstaða sem við erum í hér og þá þurfum við líka að vita hvað við ætlum að gera við hana, einsetja okkur það og koma okkur saman um hvernig við viljum verja þessari orku. En ég er algjörlega sammála því, og því markmiði sem fram kemur í þessari tillögu, að fyrst og síðast verðum við að tryggja þessa orku til orkuskipta hér heima og í þágu almennings hér heima, orku sem er framleidd að langstærstum hluta af fyrirtæki sem við eigum sameiginlega og þannig á það að vera, þetta fyrirtæki á líka að vera í sameiginlegri eigu sem stundar hvað mesta framleiðslu á þessu.

Tvennt í viðbót vildi ég koma inn á: Annars vegar eru það upprunavottorðin sem hv. þm. Eyjólfur Ármannsson fór yfir í andsvari sínu. Það hefur nú verið minn skilningur, af því að þetta kemur reglulega til umræðu hér, að það sé einmitt val fyrirtækjanna sem framleiða orkuna hvort þau yfir höfuð selji þessi upprunavottorð eða ekki. Sjálfum hefur mér þótt mjög miður að þetta skuli vera gert en á móti kemur að hugsanlega mætti taka á því með sérstakri eigendastefnu þegar stærstur hluti af því sem við framleiðum er framleitt af hinu opinbera fyrirtæki, Landsvirkjun.

Að öðru leyti fagna ég þessari tillögu. Ég styð hana og ég styð hugmyndina í henni eins og hún kemur fram.