155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:17]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil gera grein fyrir atkvæði mínu vegna þess að það hefur komið fram í máli okkar Vinstri grænna að við erum ósátt við þann hluta sem að þessu snýr, þ.e. veiðigjaldið annars vegar og svo gjaldtöku vegna fiskeldis hins vegar. Gjaldtaka vegna fiskeldis kom fram hjá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra í málinu sjálfu þannig að ég hef sagt að ég telji ekki ástæðu til þess að falla frá þeirri ákvörðun sem lögð var fram í frumvarpinu. Mér finnst einnig að við hefðum átt að standa við það sem ráð var fyrir gert, að hækka gjöldin á uppsjávartegundirnar þannig að við næðum meiru inn. Ég tel að það hefði verið hægt að gera það hér á þeim tíma sem við höfum haft til umráða. Þess vegna mun ég ekki greiða atkvæði með þessum lið.