Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):
Ég held að þetta sé óskaplega mikil einföldun á ástandinu í þessum löndum og vísa aftur og ítrekað í yfirlýsingar sem koma frá kvenréttindakonum og mannréttindahópum í þessum löndum.
Mig langaði aðeins til að taka upp annað atriði sem hæstv. utanríkisráðherra vék að, það varðar Palestínu og Sharon. Það er alveg rétt sem hann sagði að sundum geta haukar orðið dúfur. Stundum tekst haukum að ná ýmsu fram sem öðrum tekst ekki og hann vitnaði í Nixon sem opnaði dyrnar til Kína á sínum tíma. Þetta er alveg rétt. Ég held hins vegar að Sharon sé ekki slíkur maður, því miður. Svo ég vitni í helstu ráðgjafa hans og í fréttafrásagnir í Morgunblaðinu nýlega þá má þar sjá fyrirsögnina: „Vill hindra stofnun ríkis Palestínumanna“, en þar er verið að vísa í Sharon. Þetta er það sem ég hef verið að auglýsa eftir, umræðu um ýmis álitamál sem eru uppi. Heimurinn er ekki jafnsvart/hvítur og afdráttarlaus og kemur fram í máli hæstv. utanríkisráðherra.
Mig langar að lokum til að beina spurningu til ráðherrans sem ég hef ekki fengið svör við ennþá. Ég vísaði í beiðni bandarískra hermálayfirvalda um að sameina svo nefndar friðargæslusveitir í Afganistan bandaríska herliðinu. Það hafa komið fram beiðnir. Þetta var rætt í fjölmiðlum í Evrópu og vestan hafs. Hver er afstaða íslenskra stjórnalda til þessa?