aðgerðir Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Ég myndi vilja byrja á því að minna á að fjármálafyrirtækjum í eigu hins opinbera ber að starfa í samræmi við eigendastefnu ríkisins og þar eru lagðar allar meginreglur. Stjórn og starfsemi bankans á að samræmast þeim áherslum sem birtast í eigendastefnunni.
Varðandi síðan áherslur bankans verð ég að viðurkenna að þetta kemur mér nokkuð spánskt fyrir sjónir. Maður veltir því t.d. fyrir sér ef bankinn vill leggja áherslu á jafnræði, jafnrétti og grænar lausnir í starfsemi sinni hvar hann hyggst draga mörkin í því. Auðvitað er það svo að við hér á Alþingi og stjórnvöld hverju sinni, ríkisstjórnin, höfum á undanförnum árum lagt áherslu á þessa málaflokka, grænu málaflokkana og jafnréttismálin. Ef menn ætla að gera þá að einhverju aðalatriði í sinni starfsemi þá finnst mér ákveðinn tvískinnungsháttur í því að ætla að gera það eingöngu á útgjaldahlið bankans en ekki á tekjuhliðinni. Ætlar bankinn, ef menn ætla að taka þessa stefnu og þróa þessa hugmyndafræði eitthvað lengra, að neita viðskiptum við þá sem starfa ekki samkvæmt þessari hugmyndafræði en ætla að eiga viðskipti við bankann þannig að bankinn hagnist á því? En þegar bankinn þarf að líta á það sem kostnað eða útgjöld þá eigi einhver önnur flokkun við?
Ég sé ekki alveg hvert menn eru að fara með þessu, enda heyrist mér að á þessu stigi máls séu menn miðað við fréttir — og það er það eina sem ég hef um þetta mál, það er í fréttum í dag — að eiga samtöl um þetta og reyna að hvetja til þess í samskiptum við viðskiptamenn sína að jafnréttismál séu ofarlega á baugi. Það er út af fyrir sig gott og blessað. En það eru takmörk fyrir því hversu langt menn geta siglt frá þeim áherslum sem birtast í eigendastefnu ríkisins.