131. löggjafarþing — 25. fundur,  11. nóv. 2004.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:01]

Rannveig Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þekki alla þá umræðu og hún gekk svo langt að menn voru kallaðir landráðamenn. Það er liðin tíð. Þessi stuðningur í Framsóknarflokknum náði ekki inn á Alþingi. Helmingurinn af þingflokknum greiddi atkvæði gegn, hinn helmingurinn sat hjá og það kallast ekki stuðningur.

Það sem ég er að draga fram og þingmaðurinn nefnir einföldun, og ég get alveg tekið undir það á sama hátt og flokksmenn þingmannsins leyfðu sér að halda því fram að allt hefði breyst af því að Framsóknarflokkurinn fór í ríkisstjórn. Það er munur á því og þegar Alþýðuflokkurinn var í ríkisstjórn á kjörtímabilinu á undan þegar aflabrestur varð, þegar markaðir lokuðust og það voru mjög erfiðir tímar á Íslandi og ekki hægt að gera margt af því sem flokksmenn dreymdi um að hægt væri að hrinda í framkvæmd við að fara í ríkisstjórn. Það skipti máli á slíkum tímum að horfa á hvað unnt væri að gera til að snúa vörn í sókn og það gerði sú ríkisstjórn. Hún á það að hafa virkilega tekið á stóra sínum, sett Ísland inn í Evrópu og unnið þar bæði markaði og ný tækifæri sem verulega breyttu ástandinu hér á árunum sem á eftir komu.

Það sem ég hef gaman af að nefna er einmitt að vísa í orð hæstv. núverandi forsætisráðherra. Ég er ekki að einfalda neitt, ég er að vísa í orð hans í mörgum ræðum á liðnum árum þar sem hann hefur sagt að EES-samningurinn sé undirstaða þeirrar velferðar sem við höfum búið við að undanförnu. EES-samningurinn hafi hleypt nýju lífi í atvinnulíf á Íslandi, að við eigum EES-samningnum meira eða minna að þakka hversu vel hefur tekist til á liðnum árum, og ég veit allt um það að hæstv. forsætisráðherra er með allt aðrar hugmyndir um Evrópu og jafnvel Evrópusambandsaðild í dag.