Kjaramál kennara og skólastjórnenda í grunnskólum.
Anna Kristín Gunnarsdóttir (Sf) (andsvar):
Frú forseti. Ég held reyndar að staðreyndirnar tali allt öðru máli en hæstv. ráðherra gefur í skyn varðandi tekjur framhaldsskólakennara og grunnskólakennara. Við eigum auðvitað að bera saman grunnlaunin en ekki það sem mismunandi stéttir eru að afla sér með aukavinnu.
Varðandi launamálin verður hæstv. ráðherra að gera grein fyrir því hvað það er í starfsumhverfi þessara tveggja stétta sem hún telur að geri það að verkum að grunnskólakennurum beri að fá lægri laun en framhaldsskólakennurum, í svo miklum mæli sem við sjáum að er í dag. Það hefur hæstv. ráðherra ekki gert.