Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Virðulegi forseti. Ég vona að ég hafi ekki verið misskilin, þ.e. að ég hafi ætlast til að peningarnir kæmu allir á einu bretti í þessum áfanga varðandi þjóðarsjúkrahúsið, en ég var eiginlega að spyrja um hvort einhverjar áætlanir lægju fyrir um áframhaldið. Það er alveg ljóst að þetta er mjög mikilvæg bygging og mikilvæg framkvæmd og ég er sammála hæstv. ráðherra um að ekki hefði verið ráðist í þetta verkefni nema vegna andvirðis af sölu Símans, þannig að þetta er mjög mikilvæg ákvörðun sem hefur verið tekin. Spurning mín varðaði miklu frekar hverjar væru frekari áætlanir um það hvernig staðið verði að framkvæmdum.