fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Það þarf greinilega að kenna hæstv. fjármálaráðherra eitthvað um meintar skerðingar Samfylkingarinnar á bótum almannatrygginga. Við hækkuðum þær stórlega frá 2007 til 2008. Þegar hrunið varð, hæstv. fjármálaráðherra virðist horfa fram hjá því, og brúa þurfti bil upp á yfir 200 milljarða á ríkissjóði þá lágu fyrir tillögur frá Sjálfstæðisflokknum um að endurvekja makatengingar, sem er staðfest af Hæstarétti að sé brot á stjórnarskrá. Og þá lágu líka fyrir tillögur frá Sjálfstæðisflokknum um að breyta t.d. tekjutengingum í fæðingarorlofi þannig að þar yrði tekjuhlutfall fært niður í 60%. Ekkert af þessu gerðum við allan niðurskurðartímann mikla, ekkert af þessu. Við skertum ekki lægstu bætur almannatrygginga um eina einustu krónu, hæstv. fjármálaráðherra þarf að kynna sér betur staðreyndir mála, ekki eina einustu krónu. (Gripið fram í.) Við skertum ekki bætur atvinnuleysistrygginga um eina einustu krónu. Við skertum hjá betur stæðu lífeyrisþegunum með þeim hætti að grunnlífeyrir var látinn skerðast við 215 þús. kr. og hann féll niður við 330 þús. kr. úr lífeyrissjóði. Það voru skerðingarnar okkar og síðan voru skerðingarmörk vegna launatekna, sem höfðu verið 45% og voru komin niður í 38% rétt fyrir hrun, færð aftur tímabundið upp í 45%, tímabundið. (Gripið fram í: Allt …) Allt og sumt voru þetta nú skerðingarnar og að heyra frá hæstv. fjármálaráðherra að hann þekkir ekki einu sinni staðreyndir mála. Við hækkuðum með skipulegum hætti lægstu bætur almannatrygginga og atvinnuleysistrygginga allt kjörtímabilið síðasta og þegar gerðir voru sérstakir lágtekjusamningar settum við viðbótarpeninga inn í kerfið til að tryggja að lægstu bætur almannatrygginga gætu fylgt lægstu launum vegna þess að það er hluti af grundvallarstefnu Samfylkingarinnar að það eigi að vera þannig að bætur almannatrygginga séu í takt við lægstu laun. Þess vegna erum við að leggja fram tillögur sem eru í fullu samræmi við gerðir okkar á þeim tímum sem við vorum að fást við fordæmalausan vanda í ríkisfjármálum. Og að heyra hér hofmóðugar yfirlýsingar hæstv. fjármálaráðherra er fyrir neðan allar hellur í þessum efnum (Forseti hringir.) en því miður hef ég ekki tækifæri til að núa honum um nasir enn frekar varðstöðu hans um óbreytt ástand í landbúnaði en til þess gefast tækifæri síðar.