fjárlög 2020.
Herra forseti. Ísland er að hækka hlutfallsleg framlög til þróunaraðstoðar miðað við þjóðartekjur. En þjóðartekjur rokka upp og niður og eru frekar á niðurleið hjá okkur núna. Það er pínulítið plat í því að nota hlutfall af þjóðartekjum og segja að við séum að gera betur.
Hv. þingmaður nefndi skattbreytingar sem verkalýðsfélögin knúðu fram. Mér finnast útfærslurnar jákvæðari en sýndar voru hér í vor þegar þetta var allt til umræðu. Það er gott og blessað en það er óásættanlegt að við skulum ekki líta á hinn endann og að við skulum ekki ætla að gera þær kröfur til fólksins sem naut uppsveiflunnar sannarlega og er að bæta við sig eignum og tekjum að það leggi fram sinn(Forseti hringir.) réttláta skerf í gegnum tekjuskattskerfið þegar við erum að fara í niðursveiflu. Það er óásættanlegt. (Forseti hringir.) En auðvitað fagna ég breytingum sem eru til batnaðar fyrir þá sem eru tekjulægstir.