151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

kynjahalli í aðgerðum ríkisstjórnarinnar.

[10:46]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Niðurstaðan er samt sú að með aðgerðum hæstv. ríkisstjórnar, með þeim útgjöldum sem lögð eru til til að bregðast við atvinnukreppu, hallar á konur. Þannig er það. Við hljótum að krefjast þess að því verði breytt. Hæstv. ríkisstjórn ætlar ekki einungis að auka kynjamisrétti með aðgerðum sínum heldur líka að mismuna fólki sem er atvinnulaust og í erfiðri stöðu. Þegar tekjutengda tímabilið var lengt í byrjun september benti ég ítrekað á að með þeirri lagasetningu væri verið að skilja eftir þau sem voru komin á grunnatvinnuleysisbætur og búin með þriggja mánaða tekjutengdar bætur. Stjórnarliðar kusu að hlusta ekki og skildu 12.000 manns eftir þegar aðrir atvinnulausir fengu tekjutengdar bætur í sex mánuði. Hvers vegna var jafnræðis ekki gætt? Hvers vegna vill ríkisstjórnin að sumir taki á sig allramesta skellinn í þessari kreppu?