sköpun nýrra starfa.
Virðulegi forseti. Ég get bara talað svona mjög auðveldlega. Þetta stendur í fjármálaáætluninni. Ég spurði um ný varanleg störf. Ég spurði af því að stjórnarandstaðan var með nákvæmlega sömu tillögur um nýsköpun í vor sem ríkisstjórnin hafnaði þá. Ég spurði af því að það er um 10% atvinnuleysi, þrátt fyrir allt þetta. Þessa dagana treysta tugir þúsunda manna á opinbera framfærslu. Við getum aðeins vonað, því að það er ekki áætlun um annað svo sjáist í fjármálaáætlun, að flestir þeirra sem eru á atvinnuleysisbótum komist af þeim sem fyrst, það eru einungis tímabundin úrræði í boði, og vonast til þess að ferðamenn verði komnir 2023 svo að ekki þurfi að fara í niðurskurðinn. Þetta stendur einfaldlega í fjármálaáætlun, mjög auðvelt að finna það. Að þiggja lífeyri er hins vegar ekki tímabundin ráðstöfun og því nauðsynlegt að þar sé sérstaklega hlúð vel að fólki. Ríkisstjórnin ætlar hins vegar ekki að gera það, enda á að skilja lífeyrisþega eftir með hækkun langt undir þeim kjörum sem aðrir hafa fengið í samningum að undanförnum. Það eru engar áætlanir um að hlúa andlega að þeim mikla fjölda sem mun eiga um sárt að binda í atvinnuleysi og ekkert í boði fyrir hann nema bíða og vona. Þetta eru mikil umskipti frá orðum hæstv. ráðherra um að réttlætið þyldi enga bið.
Hefur farið fram einhvers konar mat á þeim kostnaði sem verður til framtíðar með því að halda fólki í áframhaldandi óvissu og óöryggi á lágum bótum?