fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég hlustaði á ræðu hv. þingmanns þar sem mér fannst þungamiðjan vera skattapólitík og skattahugmyndafræði í samhengi við það fjárlagafrumvarp sem hér liggur fyrir. Þá varð mér hugsað til þess að mér fannst leiðarstefið og kjarninn og allur þungi í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins vera tvö loforð. Það var annars vegar lægri skattar og hins vegar, sem var stóra loforðið, að koma í veg fyrir vinstri stjórn. Þeir sitja núna undir forsætisráðherra Vinstri grænna. Þá stendur eftir loforðið um skattalækkanir. Þegar stjórnarsáttmálinn er rýndur þá er það rétt að orðið skattalækkun kemur fyrir á einum stað, jafnvel tveimur stöðum, en talað er um skattalækkanir í samræmi við þróun ríkisfjármála. Hraustlegur fyrirvari, ég held að allir geti skilið þann texta þannig. Og þegar maður skoðar síðan kaflann um tekjuöflun ríkisins sem skattar ættu nú að heyra undir þá er í engu vikið að skattalækkunum, ekki eitt einasta orð, ekki fjallað um mögulega skattstofna sem kæmu til álita o.s.frv.
Mig langaði til að spyrja þingmanninn, af því að hann hefur greinilega lúslesið þetta frumvarp og kannski séð eitthvað sem ég hef misst af, en ef ekki: Hvernig ræður hann í þessa þögn frumvarpsins um skattalækkanir?