fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Mér hefur fundist umræðan hérna í kvöld áhugaverð því hún varðar þessi grundvallarelement sem undir liggja og vísa þar m.a. til ræðu eða andsvara hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur varðandi hvað það þýðir þegar menn tala um Báknið burt. Ég er sjálf þeirrar skoðunar að það eigi að nálgast viðfangsefnið með þeim hætti sem hér hefur komið fram, að meginkeppikeflið hljóti að vera virðing fyrir fjármunum skattgreiðenda, að við leitumst við að fara sem best með fjármuni til að geta náð fram sem mestum árangri í þessum kerfum sem við viljum öll verja og standa vörð um, efla heilbrigðisþjónustuna, menntakerfið o.s.frv. Ég er sammála því að það eru hættumerki þar og meira en hættumerki af því að við höfum heilt kjörtímabil til að líta til. Ég ætla því að fá að ljúka máli mínu á því að segja að ég deili svartsýninni með hv. þingmanni.