152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[22:12]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er nú þannig að þess sjást merki í fjárlagafrumvarpinu að það eigi að bæta hag þessa hóps og nú um áramótin verður frítekjumark atvinnutekna hækkað í 200.000 kr. á mánuði. Þarna er verið að bæta kjör þess fólk sem hefur getu og vilja til þess að vinna eitthvað áfram þó að það hafi náð 67 ára aldri. Síðan á að fara í endurskoðun á þessu kerfi. Það er mjög mikilvægt í mínum huga að þá verði horft til þeirrar vinnu sem þegar hefur verið unnin og ég nefndi sérstaklega í minni ræðu, bæði frá félagsmálaráðherra 2019 og síðan frá eldri borgurum frá 2017. Það eru mjög góðar tillögur um það með hvaða hætti væri hægt að bæta kjör eldri borgara. (Forseti hringir.) Þannig að ég held að þess sjáist alveg merki að það eigi að bæta kjör þessa hóps. (Forseti hringir.) En þetta er fyrsta skrefið, ég viðurkenni það, og það er hægt að gera betur. Vonandi sjáum við fram á það innan ekki svo langs tíma.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutíminn hefur verið styttur í eina mínútu í andsvörum.)