fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég ætla nú að leyfa mér að halda því fram að áhrif þessara laga séu ekki komin fram þrátt fyrir að hv. þingmaður haldi hér öðru til haga þar sem breytingarnar á því fyrirkomulagi sem heimilt var eru ekki komnar fram, þ.e. að þegar sameiningin sem er að eiga sér stað núna á þessum dögum, bara núna í haust — hagræðing og annað slíkt í tengslum við afurðastöðvar er ekki komin fram og það gerist ekki alveg á næstu dögum. Við vitum það alveg. Hún á eftir að skila sér. Það að vörur hafi hækkað mismunandi mikið — ég ætla nú bara að leyfa mér að halda því fram að það sé mjög margt sem þar er undir og ekki endilega að þetta sé aðalorsökin, að einhver hafi séð heimild til einhvers, þ.e. sameiningar á afurðastöðvum, að það sé orsökin fyrir því að kjöt hafi hækkað. Ég ætla bara að draga í efa að það sé ástæðan. Hins vegar vona ég að þetta verði til þess, eins og ég segi, þegar fram í sækir og raunverulega verður orðin hagræðing að við sjáum vöruverð lækka til neytenda, a.m.k. ekki hækka og afurðaverð til bænda, sem nú þegar hefur hækkað talsvert mikið, verði enn þá betra.
Ég hef óskað eftir því við mitt fólk í matvælaráðuneytinu að fara þess á leit við ASÍ, og það hefur þegar farið fram samtal um það, að þau fylgi þessu eftir, fylgist með alveg frá upphafi til enda, ef maður getur sagt sem svo, af því að ég hef áhyggjur af því að milliliðirnir, fremur en einhverjir aðrir, eins og svo oft áður, taki til sín meira en góðu hófi gegnir. Það höfum við heyrt í gegnum tíðina, ekki bara í kjöti heldur í svo mörgum öðrum vörum. En þetta er alla vega það sem undir er að gera samning við Alþýðusambandið um að fylgja eftir.