155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:32]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Leggja mat á afleiðingarnar — eins og ég segi eru skattframtöl þessara fyrirtækja grundvöllur þess að ákveða m.a. veiðigjöldin. Ég ætla að leyfa mér að halda því fram þar fari fram ákveðið mat þegar álögur eru ákveðnar. Ég vil líka segja, af því að hv. þingmaður spurði um hækkunina, að þetta er í rauninni ákvörðun sem tekin var innan ráðuneytisins. Ég ber ábyrgð á því að uppsjávargjaldið er hækkað í 45% úr 33%. Það er að sjálfsögðu ég sem ber þetta fram þannig að ég get ekki sett þá ábyrgð yfir á neinn annan. Eins og ég segi þá tel ég ekki vera neina ástæðu til þess, (Forseti hringir.) í ljósi þess hverjar tekjur þessara fyrirtækja eru, að hafa áhyggjur af því að þetta hafi áhrif á hvar þau standa eða á framtíðarmöguleika þeirra til að fjárfesta eða eitthvað slíkt.