156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:38]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hlý orð í minn garð. Ég get upplýst það hér að ég á það nú alveg til að lesa ræður frá þingmönnum Flokks fólksins mér til skemmtunar og gleði, og frá öðrum flokkum líka meira að segja, ég get alveg upplýst það hér. Og hvað get ég lært af þeim? Jú, stundum lærir maður af þeim og stundum ekki. Ef ég ætti að læra eitthvað af þessari ræðu sem ég var að vitna í hér áðan er það kannski það sem stendur upp úr henni, hv. þingmaður, að umrætt mál brýtur gegn stjórnarskrá Íslands að mati þingmannsins. Það er svona lærdómur og innihald þeirrar ræðu. Ég veit svo sem ekki hvort hægt er að lesa eitthvað annað út úr henni en það. Ég held að það hafi verið kjarni hv. þingmanns í ræðunni og miðað við málflutning Flokks fólksins í dag í þessu máli væri kannski fróðlegt fyrir hans eigin flokksmenn að lesa það sem áður var sagt, svona miðað við hvað menn ætla að leggja hér fram á nýju þingi.