157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Ég tók skilmerkilega fram að hér væri ég ekki að leita að neinum blórabögglum, einungis að við séum sammála um hvað hefur tekist vel og hvað hefur tekist síður vel. Ég er kannski ekki merkilegur stjórnmálamaður, það vita víst allir, en ég get á engan hátt skilið hvernig við ætlum að komast áfram ef við getum ekki einu sinni verið sammála um hvaða lærdóm við getum dregið af sögunni. Þess vegna finnst mér mikilvægt að varpa þessari spurningu fram og viðurkenna að þetta er sameiginlegt verkefni okkar hér, að ná tökum á skuldastöðu ríkisins, lækka skuldir til þess að búa til það viðnámsþol sem ríkissjóður Íslands verður að hafa vegna þess að á Íslandi lendum við í því vegna nábýlis við náttúruna, vegna smæðar okkar, að lenda í áföllum.

Mig langar síðan að lokum að nefna einn lítinn hlut. Það er misskilningur hjá hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur að það sé verið að taka fyrir samnýtingu persónuafsláttar. Hann mun áfram haldast óbreyttur.