157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:12]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið. Ég vil fá að svara því hvort þessar aðgerðir hafi verið of umfangsmiklar og hvort þær vörðu of lengi og hvort við getum orðið sammála um það. Ég held að við verðum öll ekki nákvæmlega sammála um það hvernig þetta fyrirkomulag var en ég held að við getum verið sammála um að það var nauðsynlegt að bregðast við. Ég held að við séum sammála um að það hafi verið rétt aðgerð að ríkissjóður skyldi grípa atvinnulífið með þeim hætti sem þarna var gert og koma í veg fyrir algjört hrun í einni mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar. Svo því sé bara haldið til haga eru nú, fimm árum seinna, enn mörg lítil einkafyrirtæki að ströggla og hafa ekki náð sér á strik eða komist út úr þeim skuldavanda sem varð til á þessu tímabili hjá þessum fyrirtækjum.

Ég er sammála hæstv. ráðherra að hér verður að vera viðnámsþróttur og það var viðnámsþróttur að ég tel þegar heimsfaraldur skall á með miklum þunga. Mig langar aftur á móti að fá að varpa því til ráðherrans hvaða skoðun hann hefur á því frumvarpi sem hér er lagt til um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu þar sem á síðasta þingi komu alvarlegar athugasemdir einmitt frá ráðuneyti ráðherrans varðandi þá aðgerð; hvort hann deili þeirri skoðun að þetta geti haft verðbólguhvetjandi áhrif og valdið fjárhagslegum óstöðugleika í ríkissjóði?