157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:20]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil taka undir með hæstv. ráðherra hvað það varðar að forgangsröðunin, sem við sjáum birtast í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi, sé rétt og góð. Ég lít hins vegar á það sem hlutverk mitt hér að hvetja ráðherra og ríkisstjórnina alla til dáða. Ég vil alls ekki að það verði skilið sem einhver ábending um að við þurfum að breyta forgangsröðun okkar í þágu Úkraínu — og ég veit að hæstv. ráðherra skildi mig ekki þannig. En það verður bara að segjast að við verðum líka að vera með fókus á heimskautasvæðið. Við eigum ofsalega stór svæði þar sem við berum ábyrgð á. Við erum vonandi meðvituð, og ég lít svo á að við séum gífurlega meðvituð um það, um þá ábyrgð sem við berum á þessu svæði. En ég vil umfram allt sjá það gerast að við náum líka sóknarfærum inn í sameiginlega sjóði — ég veit að það stendur okkur til boða sem Evrópuþjóð, sem EFTA-þjóð, nota bene ekki sem ESB-þjóð — þeirra samvinnuverkefna sem ég veit t.d. að eru að fara af stað af hálfu Norðmanna. Þetta snertir okkur öll og eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra. Við ætlum að vera frábær bandamaður og við skulum líka sýna að við séum áreiðanleg og ábyrg og séum ekki föst í einhverju karpi.