157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:09]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það er rétt að stofnframlögin gengu ekki út eins og vonir stóðu til en ástæðan liggur flestum ljós fyrir. Það var skortur á lóðum en það var ekki skortur á fjármagninu til að veita í þetta. Þetta var tímabundið fjármagn sem hv. þingmaður ætti kannski að kannast við frá fyrri ríkisstjórn. Þetta var í rauninni bara áframhald. Núna myndi þessi heimild falla niður að öllu óbreyttu og þessir peningar ekki verða til. En það er bara verið að framlengja því. Spurningin er tæknileg og ég hvet hv. þingmann, ef hún vill fá þetta niðurnjörvað og á prenti, til að koma með skriflega fyrirspurn og lofa sérfræðingnum mínum að glíma við það. En það er rétt að stofnframlögin okkar hafa alls ekki gengið út. Það er út af því að það var hreinlega ekki hægt að byggja út af lóðaskorti, því miður. En þetta stefnir allt í betri átt og til betri vegar og hamarinn er hér á lofti og úti um allt land meira að segja.