157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:03]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Nú er það þannig að menntunarbakgrunnur minn er með þeim hætti að þessi atvinnugrein stendur hjarta mínu ákaflega nálægt og ég tek undir orð hv. þingmanns um að fækkun bænda er áhyggjuefni. Við þurfum samt að horfast í augu við staðreyndir þar eins og t.d. að framleiðniþróun í landbúnaði gerir það að verkum að markaðurinn vex ekki þeim mun hraðar. Þá verðum við að finna fleiri stoðir og það er mjög ríkur vilji að skoða alla möguleika í stöðunni. Ísland býr við auðlindir sem við vitum að við getum nýtt og það sem kannski gleymist oft í því samhengi er að íslensk sumur eru óvanalega löng, þó að þau séu frekar köld, og land á Íslandi er ekkert sérstaklega dýrt. Þarna eru tækifæri sem okkur ber skylda til að kanna til hlítar; hvernig við getum þau nýtt til þess(Forseti hringir.) að byggja undir bjarta framtíð fyrir íslenskan landbúnað.