Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Virðulegi forseti. Þetta er svolítið skondið, eftir innleggið frá því fyrr í dag þar sem Samfylkingin var með utandagskrárumræðu um stöðu efnahagsmála í landinu. Það er sannarlega gott fyrir okkur að vita að þetta er innlegg Samfylkingarinnar í þá umræðu, að það má alls ekki horfa til framtíðar. Það má ekki gera nein plön til framtíðar. Þeir vilja greinilega geyma þessa tæplega 67 milljarða kr. og ráðstafa þeim ekki. Það yrði fyrst erfitt að gera langtímaspár í hagkerfinu ef slík vinnubrögð yrðu viðhöfð.
Við hljótum einnig að ráða það í orð hv. þm. Lúðvíks Bergvinssonar að Samfylkingin sé á einhvern hátt ósátt við þá ráðstöfun söluandvirðis fyrir Símann sem kemur fram í frumvarpinu. Það væri gaman að fá að heyra hvaða aðrar hugmyndir hv. þingmaður hefur.