132. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[15:43]
Hlusta

utanríkisráðherra (Geir H. Haarde) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það liggur fyrir að ekki er hægt að klára öll verkefni eða ljúka öllu sem gera þarf í þjóðfélaginu næstu árin með andvirði þessarar sölu. Sú stefna var mörkuð að taka viðráðanlega og skynsamlega áfanga í nokkrum stórum málum sem ella hefðu hugsanlega getað orðið okkur ofviða. Sjúkrahúsið nýja getur hugsanlega verið í byggingu alveg fram til ársins 2018 miðað við þær áætlanir sem fyrir liggja. En það er tekið svo stórt skref núna með þessum ákvörðunum að það á ekki að vera mikið mál, álít ég, fyrir þá sem munu ráða för í fjármálum ríkisins árið 2012 að klára það mál, a.m.k. kosti verður það mun auðveldara en ef við hefðum ekki staðið svona að málum. Sama er að segja um Sundabrautina. Verið er að taka þarna langsamlega mikilvægustu áfangana í hvorum tveggja þessum framkvæmdum og þá eiga þeir sem taka við af okkur hér, þegar þar að kemur, auðveldara um vik að klára þessi mál.