Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Frú forseti. Það er kannski eðlilegast að heilbrigðisráðherrann svari þessu við annað tækifæri. Ef tekst að framfylgja þeirri áætlun að taka tvo fyrstu áfangana í nýja þjóðarsjúkrahúsinu, sem ég leyfi mér að kalla svo, og klára þá á árinu 2012, hefur verið búið þannig um hnútana að áreiðanlega verður hægt að loka öðru af þessum gömlu húsum, væntanlega í Fossvogi, og gera sér mat úr söluandvirði þeirrar eignar og væntanlega einnig margra annarra húseigna sem spítalinn rekur hér í bænum. Þannig verður til fjármagn til þess að halda áfram. Það, til viðbótar þessu, mun gera það enn auðveldara að ljúka því sem þarf að veita í beinum fjárveitingum inn í þetta mál þegar þar verður komið sögu. En það er eftir sjö ár og ég treysti mér ekki alveg til að fullyrða hvernig landslagið verður hér þá, en þó tel ég að það verði nokkuð gott.