fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég þakka svarið og fagna því auðvitað að hv. þm. Birgir Þórarinsson muni greiða atkvæði með tillögum Miðflokksins við afgreiðslu fjárlaga um að hækka frítekjumark eldri borgara í 500.000 kr. en ekki 200.000 kr. eins og ríkisstjórnin leggur til.
Hv. þingmaður kom jafnframt inn á það í ræðu sinni að ríkisfjármál verði að fela í sér aðhald. Hv. þingmaður hefur á fyrri stigum, eins og sá sem hér stendur, talað fyrir því að það þurfi að minnka báknið. Mig langar til að spyrja hv. þingmann að því hvað í fjárlögunum eins og þau liggja fyrir lýsi sérstöku aðhaldi frá ríkisstjórnarflokkunum, í hvaða málaflokkum hv. þingmaður sjái þess helst merki.