152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[22:53]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður sagði að það væri staðreynd að atkvæði hefðu ratað inn í bunka C vegna mannlegra mistaka. Það er einmitt vandamálið. Við vitum það ekki, við getum ekki fullyrt um það. Þess vegna er það ekki staðreynd af því að við getum ekki fullyrt um það. Við fórum meira að segja í enn eina ferð til Borgarness og sáum það mjög greinilega að seinni talningin var ekki rétt, af þeim gögnum sem við skoðuðum þar. Staðreyndir málsins eru þannig eitthvað sem við bara einfaldlega vitum ekki. Það er, ef eitthvað, stærsta staðreynd þess máls.