fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég hef lúmskt gaman af því hvað við erum sammála um það að þetta sé fáránlegur peningur. Þetta eru fáránlegir fjármunir sem við erum að verja í þetta kerfi. Hv. þingmaður nefnir hins vegar lausnir sem leysa ekki það sem þessi lög hafa gert og það sem stefna ríkisstjórnarinnar gerir. Stefna ríkisstjórnarinnar er að segja nei við sem flesta. Það er það sem er að valda þessari tregðu í kerfinu. Það gerði það t.d. að verkum að umsækjendur frá Venesúela, sem áður fengu í rauninni nánast bara stimpil og gátu farið að vinna, stofnað fyrirtæki eða byggt upp sitt líf á eigin fótum, biðu mánuðum saman, bara starandi á hvíta veggi einhvers staðar í boði íslenskra stjórnvalda eftir ákvörðun stjórnvalda um að þau ættu ekki að fá að vera hérna. Það þýðir að það þarf að kafa í hvert einasta mál og það þarf að meta það sérstaklega sem þýðir að málsmeðferð tekur miklu lengri tíma. Það er verið að þyngja kerfið og þrátt fyrir að við myndum taka á móti fleiri einstaklingum í gegnum kvótaflóttamannakerfið þá er ekkert sem bendir til þess að það myndi fækka þeim fjölda sem leitar hingað.
Gallinn við kvótaflóttamannakerfið — það er í rauninni kerfi sem allir tala alltaf um að við ættum að setja á fót í heiminum, en það er til. Það er kerfi sem virkar þannig að Sameinuðu þjóðirnar sortera úr flóttamenn og dreifa þeim um heiminn. Vandinn er sá að ríkisstjórnir eru að bjóðast til að taka á móti algjöru brotabroti af þeim fjölda sem þarf að komast í öruggt skjól. Á meðan það ástand er, sem er alls staðar, við erum ekkert ein í því, við á Vesturlöndum erum reyndar verst, þá heldur fólk áfram að reyna að komast sjálft í skjól og það er ekkert sem bendir til þess að við getum farið að taka fleiri kvótaflóttamenn. Við erum aldrei að fara að taka 4.000 kvótaflóttamenn eða 40.000 en það er kannski fjöldinn sem við þyrftum að taka til þess að fólk hætti að þurfa að fara yfir Miðjarðarhafið. Það er ekkert sem bendir til þess að fólki sem leitar hingað sé að fara að fækka, bara ekkert. Þvert á móti er allt sem bendir til þess að því muni fjölga í framtíðinni. (Forseti hringir.)
Telur hv. þingmaður það vera skynsamlega meðferð fjármuna að eyða svona miklum peningum í að reyna að loka gluggum og dyrum í stað þess að takast á við það að það sé fólk að koma hingað og gefa því tækifæri til að læra tungumálið, (Forseti hringir.) verða hluti af samfélaginu, styrkja innviði okkar sem ganga út á það að tryggja okkar gildi?(Forseti hringir.) Er hv. þingmaður sammála þeirri stefnu sem við höfum hér?
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutími er takmarkaður í andsvörum )