155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:01]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það hefur verið tekist á um það í pólitík á Íslandi hvort markaðurinn eigi að sjá um að það sé jafnvægi á húsnæðismarkaði. Ríkisstjórnin hefur komist að því að það er ekki nóg. Það er ekki tryggt að það sé byggt húsnæði fyrir þá sem þurfa á húsnæði að halda án þess að fá opinbera aðstoð. Þess vegna höfum við komið á fyrirkomulaginu fyrsta fasteign, sem hefur virkað vel. Við höfum líka komið á fyrirkomulaginu með stofnframlögin og hlutdeildarlánin og það eru um 1.000 íbúðir byggðar af því, sem er sirka 25–30%, rúmlega einn fjórði af þeim íbúðum sem markaðurinn er að byggja.

Það er alveg ljóst að þetta er áskorun sem við búum við, annars vegar mjög hátt raunvaxtastig og háir stýrivextir og alls konar skilyrði þar sem erfitt er fyrir ungt fólk að komast inn á húsnæðismarkaðinn, en við erum síðan á móti að reyna að gera ýmislegt með mótvægisaðgerðum til að hjálpa sama fólki. Þetta er áskorun sem við erum að glíma við og (Forseti hringir.) þarna verðum við að gera betur. Við verðum að gera meira og betur í samtali við Seðlabankann, í samtali í þessum sal, í samtali við fólkið þarna úti. (Forseti hringir.) En við eigum ekki að skrúfa upp væntingar um að það eigi að fara að bæta í alls konar hluti (Forseti hringir.) í fjárlagafrumvarpinu. (Forseti hringir.) Þá búum við til verðbólguvæntingar. Fjárlagafrumvarpið er ekki þar.