fjárlög 2025.
Herra forseti. Þetta var ágætlega kröftug ræða hjá hv. þingmanni en hann talar hér eiginlega út og suður. Hann skammar mjög ríkisstjórnina og það mátti eiginlega heyra á hans málflutningi að verðbólgan í landinu væri ríkisstjórninni að kenna, gott og vel, en seinni hluta ræðunnar getur hann þess að hann hafi trú á því að verðbólga sé á niðurleið. Það séu háir raunvextir og þetta sé þá allt að koma. Er hv. þingmaðurinn þá að taka undir með hæstv. fjármálaráðherra? Ég heyrði ekki betur. Þá er óhjákvæmilegt að spyrja hv. þingmann í fyrsta lagi: Hver er orsök verðbólgunnar? Hver er meginástæðan fyrir verðbólgunni sem við erum að glíma hér við? Það væri ágætt að eiga orðastað við hv. þingmann um það. Í annan stað væri líka forvitnilegt að heyra, frú forseti, hvort virki að hans mati betur gegn verðbólgu, stýrivaxtatæki Seðlabankans eða að ríkisfjármálunum sé beitt fyrst og fremst gegn verðbólgunni. Eru það fyrst og fremst ríkisfjármálin sem eiga að hafa hemil á verðbólgunni eða er það stýrivaxtatæki Seðlabankans? Og hvað er þá að mati þingmannsins skilvirkara tæki til að takast á við verðbólguna?