155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:09]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég held að við verðum að taka þessa umræðu upp á aðeins hærra plani en boðið er upp á í þessari ræðu. Mun flokkur forsætisráðherra styðja frumvarpið? Hvers konar upplegg er þetta? Þetta er auðvitað ekki boðleg nálgun. Að sjálfsögðu styðjum við frumvarp sem við höfum tekið hér í gegnum ríkisstjórn og lagt fyrir þingið sameiginlega. Hér er hv. þingmaður að rekja af fundi eitt og annað og slítur allt úr samhengi. Þegar ég talaði um það að það sé ekki sérstakt vandamál að sjávarútvegurinn geti fjárfest í öðrum greinum þá verð ég að vísa í orð hv. þingmanns sem sagði það til vitnis um að það væri allt of mikið umleikis í íslenskum sjávarútvegi að hann væri að fjárfesta í öðrum greinum. Þetta finnst mér vera röng nálgun á þá atvinnustarfsemi, að þetta sé til merkis um að það sé mikið svigrúm og, eins og hv. þingmaður segir, að þar sé þensla. Hvað segir hv. þingmaður um þá hagfræðikenningu að það sé mun líklegra til að slá á þenslu að ráðast á útgjaldahliðina heldur en að beita sköttum sem munu alltaf skila sér mun síðar heldur en niðurskurðaraðgerðir og munu þess að auki frekar draga úr hagvexti heldur en hitt?

Við þekkjum auðvitað allar skattahækkunartillögur Samfylkingarinnar. Það þarf ekkert að rekja þær fyrir okkur og veiðigjaldið er bara eitt af mörgu sem mun koma með Samfylkingunni ef skoðanakannanir ganga eftir. Við þekkjum auðvitað að Samfylkingin ætlar sér að fara í 25% fjármagnstekjuskatt, ekki satt, og þrepaskipt veiðigjald og það stendur til að fara í erfðafjárskattinn. Ég veit ekki hvað verður gert með rannsókna- og nýsköpunarstuðninginn eða hvað verður gert með hin ýmsu örvandi úrræði sem við höfum verið að beita okkur fyrir til að skapa hagvöxt þannig að við eigum fyrir velferðinni.

Nei, ég ætla ekki að láta draga mig inn í umræðu sem á að snúast um það hvort ég ætli að styðja fjárlögin. Að sjálfsögðu stend ég með þessum fjárlögum. Þau eru byggð á fjármálaáætlun sem við samþykktum hér í vor og eru líkleg til þess að halda áfram að draga úr verðbólgunni sem greiningardeildir segja síðast í dag að sé á leiðinni vel undir 6% á næstu mánuðum.