fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Það var breyting við framkvæmd laganna um opinber fjármál fyrir nokkrum árum síðan þegar við ákváðum að fagráðuneytin skyldu bera ábyrgð á kostnaðarmati þeirra tillagna sem ráðherra ber inn í þingið og það væri eingöngu í undantekningartilvikum sem fjármálaráðuneytið, sem fram að þeim tímapunkti hafði ávallt veitt umsögn um kostnaðarmatið, myndi taka slíka vinnu að sér. Ég verð bara að segja það alveg eins og er að ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni þegar hann segir að þetta dæmi um málefni fatlaðra sé mjög alvarlegt. Þetta er gríðarlega mikið vanmat. Þegar horft er til baka þá sé ég að það fóru fram yfir 100 fundir sérfræðinga nefnda í aðdraganda þess að breytingarnar voru gerðar. Við erum sömuleiðis með tveggja ára tilraunatímabil sem átti að styðja okkur í því að meta kostnaðaráhrifin og svo voru vissulega einhverjar frekari breytingar gerðar hér í þinginu, en kostnaðarmatið fór á þessum tíma úr því að vera tæpur milljarður í yfir 20 milljarða að mati sveitarfélaganna. Þetta er auðvitað ekki boðlegt. (Forseti hringir.) Það hefði þurft að fá betri skýringar á því. En það er ekki ríkisstjórnin í heild sinni sem getur farið ofan í (Forseti hringir.) kostnaðarmatið hverju sinni heldur verður þingið líka að spyrja spurninga um kostnaðarmat.
(Forseti (ÁsF): Ég minni ráðherra á ræðutímann sem er ein mínúta.)