fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir sín orð. Ég vil ítreka það að kostnaður við brottfararúrræði er ekki enn sem komið er inni í fjármálaáætlun. Ég vil sömuleiðis ítreka það að kostnaðurinn getur orðið umtalsverður við þetta úrræði. Þetta er dýrt úrræði. Ég vil líka fá að ítreka það að það er engin aðhaldskrafa í fullnustukerfinu, ekki frekar en í löggæslu. Það hefur verið fullur hugur hjá mér sem ráðherra í þessu embætti sem ég gegni að styðja við lögregluna af öllum mætti. Það hefur verið gert og ég mun gera allt sem ég get til að gera það áfram.